Færsluflokkur: Bloggar
19.1.2011 | 21:55
Alþingi setur niður með þessari vanhugsuðu ákæru!
Skýrslutökum lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.1.2011 | 21:22
Er ekki kominn tími til að ljúka þessu erfiða máli?
Seðlabanki metur Icesave-kostnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.11.2010 | 22:07
Ég er alveg undrandi á þessum dómi Hæstaréttar.
Lét hjólið prjóna en fær samt bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.11.2010 | 22:02
Er nauðsynlegt að leiðtogar og yfirstjórnendur séu sérfræðingar?
Ég var að horfa á Kastljós þátt Ríkissjónvarpsins áðan. Brynja Þorgeirsdóttir var að ræða við Jón Gnarr borgarstjóra. Mér finnst sjálfsagt í svona þætti að spurt sé ákveðið og jafnvel svolítið beitt, en mér þykir miður að upplifa að spyrillinn geri sig sekan um að tala niður til og reyna að gera lítið úr viðmælanda sínum. Þannig upplifði ég þann ágæta fréttamann Brynju Þorgeirsdóttur því miður í kvöld. Eitt af því sem hún gekk hart fram með var að Jón, sem borgarstjóri ætti að vera sérfróður um þá málaflokka sem undir hann heyrðu. Hann á t.d. að vera efnahagssérfræðingur í borgarmálefnum, hann á að vera sérfræðingur í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur og svo framvegis. Okkur getur greint á um þetta. En ég tek undir með Jóni Gnarr, það er ekki á eins manns færi að vera sérfræðingur á öllum sviðum. En stjórnandi sem ekki býr yfir sérfræðiþekkingunni á þá að sækja hana til þess eða þeirra sem yfir henni búa og hann treystir. Mér fannst Jón Gnarr komast vel frá þessum þætti. Hann var hreinn og beinn og kom til dyranna eins og hann var klæddur.
Nýverið voru gerðar viðamiklar breytingar á ráðuneytum ríkisins. Stór ráðuneyti voru sameinuð. Tökum nú dæmi: Ögmundur Jónasson tók 2. september s.l. við ráðherraembætti Dómsmála- og mannréttinda- Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Ætti hann að vera sérfræðingur á öllum þessum sviðum. Er það í mannlegu valdi einhvers?
Ég hef oft velt því fyrir mér hvað það væri sem mér finnist mikilvægustu styrkleikar hjá háttsettum stjórnendum og leiðtogum. Og ég kemst ávalt að sömu niðurstöðu. Það er manngildið. Dómsmálaráðherra þarf hvorki að vera lögfræðingur eða lögfræðiprófessor, þó að það myndi auðvita ekki skemma fyrir. Það er manngildi þessa einstaklings sem mestu skiptir. Hann þarf fyrst og fremst að vera greindur, vel gerður, heiðarlegur og heiðvirður einstaklingur, fullur af áhuga til þess að gegna starfi sínu af trúmennsku með hag allrar þjóðarinnar að leiðarljósi. Sérfræðiþekkinguna getur hann og á að sækja til þeirra sem yfir henni búa og hann treystir hverju sinni.
Geimvera í íslenskum stjórnmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2010 | 13:38
Auðlindir ríkisins – Auðlindir þjóðarinnar
Nú í aðdraganda stjórnlagaþings er rætt mikið um hvernig tryggja megi að auðlindir Íslands verði um alla framtíð sameign allra landsmanna, þær verði nýttar með sjálfbærni í fyrirrúmi og þjóðin öll komi til með að njóta afraksturs þeirra. Á sama tíma keppast löglærðir menn við að segja okkur að þjóðareign tilgreind í stjórnarskrá eða í lagagrein hafi EKKERT lagagildi.
Okkur er því vandi á höndum. Stjórnarskráin er og á að vera samfélagssáttmáli. Í hana eigum við að skrá það sem við erum sammála um, á skýru og skiljanlegu máli. En í hana má heldur ekki vanta það sem skiptir okkur miklu máli, en við erum ef til vill ekki öll sammála um.
Ég er þeirrar skoðunar að allar auðlindir Íslands (ríkisins) eigi vera sameign allra landsmanna. Hvernig sem það verður orðað í nýrri stjórnarskrá, verður það að vera skýrt og óumdeilanlegt. Þjóðin í heild á að njóta arðs af auðlindum landsins, en ekki aðeins nokkrir útvaldir gæðingar. Það skortir jöfuð í okkar samfélag.
Með þessu er ég ekki að tala fyrir ríkisrekstri. Ég tel einkarekstur miklu vænlegri til atvinnureksturs. Ég vil heldur ekki ganga á rétt bænda, sem hafa jafnvel setið sömu jörð mann fram af manni og tryggt þjóðinni fæðuöryggi. En ég vil samt ekki að eignarhald þeirra leiði til þess að helstu uppsprettur hreins og ómengaðs vatns, sem ef til vill verður okkar stærsta auðlind í framtíðinn, lendi á fárra manna höndum auðkýfinga. Þarna verður að finna einhvern sanngjarnan og skýran milliveg.
Við höfum sára reynsu af því hvernig auðlindum okkar hefur verið ráðstafað með stundargróða sjónarmið að leiðarljósi á liðnum árum. Sjávarþorpin og bæjirnir allt í kring um landið byggðust á afrakstri fiskimiða sem stutt var að sækja til. Allur réttur til fiskveiða hefur nú safnast saman á fárra manna hendur. Fiskverkunarhúsin standa mannlaus og fókið er atvinnulaust. Að heimila framsal fiskveiðkvótans er að mínu viti einhver mesta skyssa sem gerð hefur verið í íslenskri stjórnsýslu. Í sjálfu sér var ef til vill ekkert óeðlilegt að fiskveiðréttindum yrði deilt niður á þá sem stundað höfðu fiskveiðar fyrir þann tíma sem fiskveiðistjórnunarkerfið var sett á. En það átti aldrei að veita þeim heimild til framsals eða veðsetningar á þeirri þjóðareign sem þeim var veitt heimild til að nýta.
Annað nýlegt dæmi um að misfarið sé með sameiginlega auðlind þjóðarinnar er mál HS orku og Magma Energy.
Er þetta það sem við viljum? - Ég segi nei, nú er mál að linni.
Ég býð mig fram til setu á stjórnlagaþingi, meðal annars til að standa vörð um þessa hagsmuni þjóðarinnar. Lesandi góður ég bið þig að veita mér brautargengi til þess.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 13:32
Hver er munurinn á að aka ölvaður og valda slysi í umferðinni eða að sofa undir stýri þjóðarskútunnar og sigla henni í strand?
Efins um stuðning við ákæru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 3.11.2010 kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Eiríkur Hans Sigurðsson
Færsluflokkar
Tenglar
Ökukennsla
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar